fimmtudagur, 18. desember 2008

JÓLABLOGG

Jæja kæra fjölskylda og vinir
Nú er þetta mitt síðasta blogg áður en ég kem heim.. ja mér finnst mjög líklega að ég bloggi nú ekki mikið heima.. hehe!

Í morgun/ dag vorum við Hansi bara í rólegheitum heima að spjalla saman.. ég að hafa mig til fyrir vinnuna og Hansi minn að undirbúa sig fyrir krítíkina sína sem hann fer jú í á morgun :) **good luck**...... Alllaveganna, þegar klukkan er 10 mín yfir 13:00 kíki ég í bókina mína og fatta það að ég átti að mæta í vinnuna klukkan 12:30! Ég fékk svona smá örlítið sjokk.. þar sem ég er búin að halda því fram í viku að ég hefði átt að mæta klukkan 13:30 í vinnuna. Ég flýtti mér alveg að hafa mig til og brunaði útúr húsi.. kom svo alveg móð og másandi uppí Magasin og fór beint til yfirmanna minna og bað þær afsökunar á seinkun minni og sagði þeim að ég hefði bara lesið vitlaust á vaktarplanið mitt..  þær voru bara þvílíkt ligeglad og héldu meira að segja báðar tvær að ég hefði átt að mæta klukkan hálf 2 líka! Þá róaðist ég nú bara og fór að afgreiða :)

Ég fékk jólagjöfina mína frá magasin með mér heim í dag.. ásamt fullt af öðru drasli...
Í gær fór ég til Snæju pæju og Döbbu diskó :) og Snædís litaði á mér hárið... það er semsagt orðið dökkt aftur! vei vei ég er mjög ánægð með það :) Hansi kom síðan seinna til stelpnanna.. eða reyndar bara rétt á eftir mér.... og joinaði okkur!

Í dag þreif ég allt eldhúsið okkar.. og setti í síðustu vél :) Við erum búin að pakka öllum jólagjöfum, öllum fötunum okkar ofan í tösku og svo er handfarangurinn næstum ready!
Semsagt...... allt orðið reddý 2 go :)

Núna er ég bara að spjalla við foreldra mína eða reyndar bara pabba minn.. þar sem mamma lætur sig alltaf hverfa! svo ég ætla bara að segja bæjjj allir saman :) og við sjáumst bara næsta á Íslandinu góða ;*

Jólakveðja og knús!
sAGA

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kys kys til ykkar og sjáumst fljótt ;)

Kv. Lísa M.

Nafnlaus sagði...

skemmtið ykkur vel í köben, hansi þú massar þessa krítík og jólin verða ljúf.. ..

Nafnlaus sagði...

gleymdi að segja
Luv
Bryn

Nafnlaus sagði...

Jei hlakka til að sjá ykkur :) Góða ferð..