♥ ♥ ♥ 4 & hálft ár ♥ ♥ ♥
Jæja :) í dag þann 24. maí eru 4 og hálft ár síðan við Hansi byrjuðum saman :) Ætlum ekkert að halda eitthvað spes upp á það í dag.. þar sem Hansi þarf að læra svo mikið og svona :) En við héldum svona semí uppá það í gær... (matarlega séð)
Grilluðum útá palli með Svövu, Davíð, Beggu og Sölva :) Allir komu bara með fyrir sig á grillið og við Hansi keyptum þessa svakalegu nautasteik sem var sjúúklega góð :) mmmmmm**..
Já, kvöldið var síðan bara rólegt og gott.. við fórum í buzz! og ég var búin að baka köku fyrr um daginn.. fyrir kvöldið.. svo við snæddum hana einnig í gærkvöldi :)
Á fimmtudaginn í síðustu viku voru strákarnir að keppa með Skovbakken, og unnu þeir 5-1 :) Ótrúlega flott hjá þeim.. og minn maður skoraði mark!! Ekkert smáá flott hjá honum! Var ofboðslega stolt :) :)**
Helgin var annars bara róleg.. rosa róleg bara :) Hansi lærði rosa mikið.. allan föstudaginn og allt föstudagskvöldið/nóttina! Alveg brjálað að gera hjá honum greyinu..
Annars verður dagurinn eins og ég sagði... bara rólegur :) Er að fara i ræktina kl: 14:00 með Snædísi :) ætlum að taka smá brennslu ! ;)
Annars vildi ég bara henda inn smá færslu.. sakna allra voða mikið :) Hlakka til að sjá liðið í júlí! styttist og styttist :) híhí
Love
Saga
8 ummæli:
til hamingju með daginn. Trúi varla að það seu komin fjögur og halft ár!! fljótt að líða:)
knús yfir hafið!
kv.ingunn lara
Til hamingju elskurnar....þið eruð sætust:)
Love ya,
Anna Gunna
hey til hamingju.. .. búin að gleyma því að við erum alltaf á sama tíma í þessu.. .. .. 9,5 hjá mér - 22. maí - hafið það gott næsta mánuðinn áður en þið komið heim.. ..
luv
bryn
Vá 10 ár í nóvember þá!
Sjitt.. þá verður sko haldið uppá ?? er þaggi ?? ;)
Luv luv...
Til lykke....flottustu...hvað er Berglind annars að gera þarna úti hjá ykkur ?
Steinsen fjölskyldan ætlar að hittast um helgina í bústað á Flúðum ...ég held að við verðum 22 samankomin...mikið fjör...
Hafið það gott elskurnar...
Lovjú Arna
Arna: Begga er systir hans Davíðs, vinar okkar :) Svo hún var hérna í 10 daga að heimsækja þau :)
Annars er mikil öfund varðandi flúðir.. væri svo meira en til í að fara með!!
Knúsið ömmu og afa frá mér;***
Til hamingju með árin fjögur og hálft....algjör snilld. Þið eruð bara meant to be:)
knús, Anna Gunna
Saga, visssurrrru að Mamma þín og Pabbi eiga 19 ára brúðkaupsafmæli í Ágúst. Gamli lítur út fyrir að vera ekki degi eldri en 25. Til lykke með ykkur.
Love
Pabbi
Skrifa ummæli