fimmtudagur, 6. mars 2008

þreytt !

Jii hvað maður er eitthvað andlega búinn á því þessa daganna. Skólinn var hálf boring og svo fór ég í vinnuna.. fimmtudagar eru alltaf svona hálf leiðinlegir. Sko ég er alvarlega að spá í að þruma mér undir sæng til svona sjö! Mmm.. bara kúra smá! Þegar ég kom heim úr vinnunni fór ég með Míkó út að labba.. þessi litli múlasni, er rétt núna að þora að gera þarfir sínar úti! Hann er náttúrulega ekki 100% hundur! Ég og Hansi eru alveg positive á því að við heyrðum hann mjálma í gær! haha :) Hann er nú soddan kettlingur, þessi elska... Ég ætla aðeins að kíkja í kringluna með Svövunni minni á eftir:) Athuga hvort ég sjái nú ekki eitthvað skemmtilegt;) Ég sótti Hansa í skólann rétt áðan.. ég fer nú varla að láta strákbjánan labba heim;) eða taka strætó! æjj neii.. ætli ég haldi ekki áfram að vera góða ég... Jæja.. þetta verður bara stutt í dag!! Föstudagur á morgun og svona fínerí:) Saga Steinsen;*

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ ástin mín, þú ert svo sæt <3

Nafnlaus sagði...

Þetta var bara eva sif sko ;)