fimmtudagur, 11. júní 2009

10.06.2009

* * Prins Ingólfsson* *


Í gær þann 10. júní kl: 10:50 kom þessi gullfallegi litli prins í heiminn. Hann var þá búin að vera í maganum á mömmu sinni einum degi lengur en hann átti að vera :) Átti semsagt að fæðast þann 9.júní. Svo duglegur að koma svona tímanlega! Þessi fallegi engill mældist um 18 merkur og 53 cm :) Svo hann var stór og flottur strákur!

Ég er svo stolt af Ingunni minni að hafa búið til og komið þessum fallega fallega prins í heiminn :) Manni langar bara að EIGA hann;** Rétt í þessu var ég svo að tala við hann (litla prins) á Skype :) og var hann bara glaðvakandi! Ingunn mín svo falleg og lítur sko EKKI út fyrir að hafa verið að eiga barn :) :)

Langaði bara aðeins að blogga og sýna ykkur fjölskyldunni minni þennan gullfallega strák :) og segja þér Ingunn mín ef þú lest þetta hvað ég er ótrúlega stolt af þér!! :) Þú ert algjör hetja:)
Lovjú;**


Fallegasti prinsinn :)

Fallega fjölskyldan!!**

Anna sætasta með músina :)


p.s :) Langaði líka að óska Andreu minni til hamingju með daginn á mánudaginn :) ** kossar og knúsar frá Sögu frænku í útlöndum :D!!

4 ummæli:

Anna* sagði...

Æjji snúllan þín.. fallegt og krúttlegt blogg :)
Hann er YNDI ! Búin að hugsa um hann í allan dag.. hvað mig langi til að knúsa hann aftur :)

Hlakka rosa mikið til að fá þig heim ekki nema 27 DAGAR þangað til !! :D

Knús á þig sæta mín ;*

Nafnlaus sagði...

takk fyrir afmæliskveðjuna, ASA var ekkert smá ánægð.. .. komin með eyrnalokka og læti :o) - prins ingólfsson er líka ekkert smá krútt.. .. alltaf jafngaman að fá lítið kríli í heiminn.. ..
luv
bryn

Anna sagði...

Yndislegur drengur Saga. Hef það á tilfinningunni að það sé ekki langt í þetta hjá ykkur Saga mín (sorrí Edda...þú verður amma snemma;)

Emma bað kærlega að heilsa þér Saga, var eitthvað svo mikið að tala um þig um daginn.

knús og kossar,
Anna Gunna

Nafnlaus sagði...

Yndislegt blogg frá þér Saga mín eins og alltaf.....fallegur lítill prins...
Hafðu það gott músin mín...
knúskveðja Arna