Jæja nú þarf ég ekki að halda hamingjunni inni lengur.. nú get ég bara hellt henni út.
Það er nefnilega þannig að enginn önnur en hún Ingunn Lára Ívarsdóttir.. ein af mínum bestustu bestu vinkonum er ÓLÉTT :) !! og hún á að eiga þann 5.júní!! Sjiitt hvað ég hlakka til!
Ég er náttúrulega búin að segja þetta skrilljón sinnum við hana.. en elsku Lárusinn minn.. til hamingju með litla krílið þitt.. bæði þú og Ingó;) Þið verðið FRÁBÆRIR foreldrar;**
Núna er ég bara alene hjemme.. Hansi minn er farinn til Amsterdam og ég finn það svo innilega að ég sé EIN! Líður samt aðeins betur núna en í gær :) Fannst bara eins og íbúðin mín ætlaði að éta mig...... :/
Annars.. þá er bara allt glimrandi að frétta af okkur hjúum. . Fórum í mat til Snædísar og Dagbjartar á þriðjudaginn var .. og fengum dílissjös pizzur.. fórum svo bara í partners og borðuðum snakk og flodeboller .. nammm
Ég er bara rosalega dugleg að mæta í rætkina og svona :) Fór í morgun og í går og svo auðvitað á þriðjudaginn og mánudaginn líka! Rölti bara samfó Hansa í gær.. :) Greyjið.. ferðin hans til Hollands tók 14 tíma. Svo hann var ekki kominn til Amsterdam fyrr en hálf 9 í morgun...
Úbbídúú.. hefði sko ekki nent því.. á meðan var ég bara að hygge mig hjemme og horfandi á P.S. I love you! sem er btw.. adorable;* grenjanði eins og ég veit ekki hvað yfir henni!
Í dag mætti eg svo í vinnuna.. með þennan stórgóða höfuðverk! alveg var hann svakalegur sá.. svo ég fékk eitthvað krem sem heitir peace of mind.. með svona minturóandi trítmenti.. og ég lagaðist öll!! :) algjör snilld..
Á morgun er ég .. að ég held að mæta í vinnuna klukkan 9:45 til 15:15 og ætla svo að skunda í ræktina klukkan 16:00, eftir það þarf ég svo aaalveg að drífa mig heim og sturta mig og svona.. því ég er svo að fara á Julefredagsbar, það er svona vikulegt sem er alltaf haldið í Arkitektaskólanum. Og buðu stelpurnar mér að koma með..
Á laugardaginn á ég stefnumót með Dagbjörtu og örugglega Snædísi líka.. og ætlum við að kíkja aðeins í búðir.. ég þarf að rannsaka smá fyrir mammsí og ætla að athuga hvort ég finni kannski ekki einhverjar sniðugar jólagjafir :) Það styttist alltaf og styttist í heimkomu og jól!
Við Hansi höfum svona 90% ákveðið að fara til Köben þann 20. desember.. og gista þar ein nótt.. þurfum bara að reyna að finna okkur eitthvað semí cheap hótel eða gistiheimili í eina nótt:) Vi ska' har det så hyggeligt og opleve Köbenhavnsjul :) Snædís og Dagbjört eru að spá í að fara líka :) en þær eiga reyndar flug heim þann 20.. svoo.. kannski förum við 19! En það er ekki víst :)
Ég er að spá í að fá mér bara pítu að spisa í kvöld.. eða núna bara! er orðin alveg syndsig svöng! Svo ég held ég hafi ekki mikið meira að segja.. Hafið það bara ánægjulegt og haldið áfram að sakna mín ;) híhíhí..
LOVE
SHAGGY;*
10 ummæli:
Loksins kom það(: haha
hafðu það gott úti á meðan kallinn er í Hollandi;d
heyrumst á morgun og hlakka til að sjá ykkur:)
-óli
Já jeijj hlakka svoooooo mikið til að knúsa litla Benedikt sem er í mallanum á Ingunni :D
En músan mín hafðu það nú huggulegt að vera ein í kotinu.. hefur gott af því ! :)
Dóra var að fara til Köben í dag.. ohhhh er ekkert smá abbó :D
Hlakka til að sjá þig elskan mín eftir bara mánuð ! :D jeijjjj
Laf laf laf jú ! ;*
Já.. hvað er málið með Benedikt?
Nú á þetta eftir að festast við mig... :D
Þau töluðu ekki um annað en að þetta væri litli Benedikt.. en ég er alveg hörð á því að þetta er stelpa.. jebbb... :)
MÁNUÐUR Í HEIMKOMU :)
hæ sæta mín
varð að commenta þar sem hún dóttir mín fór að tala um þig upp úr þurru og segja mér að hún saknaði þín, svo hélt hún áfram og sagðist sakna ömmu guðrúnar líka.. .. ég tók það nú samt fram að þú kæmir aftur til Íslands en amma ætlaði bara að vera áfram í útlöndum uppi á himnum :o) - henni fannst það allt í lagi en tók loforð af mér að við myndum heimsækja þig þegar þú kæmir til íslands, svo miklar dúllur þessi litlu
luv
bryn og andrea
Loksins kom blogg....smá grín ég er búin að kíkja á þetta á hverjum degi í vinnunni en auðvitað er nóg að gera hjá þér eins og okkur öllum hinum...hafðu það gott um helgina Saga mín
Kv.Arna
Brynja:
Það þarf nú ekki mikið til að ég fari að skæla.. en að heyra það að litla sæta 4 ára frænka mín sakni mín.. og fari bara að tala alltíeinu um það uppúr þurru veldur þess að ég skæli;**
Segðu þeim endilega að ég sakna þeirra líka ótrúlega mikið og ég hlakki svo mikið til að sjá þau og knúsa þau:)
Það var samt gott að hún skildi muninn á að amma guðrún væri komin uppá himininn en ég kæmi nú bara í næsta mánuði ;) hehe
Luv you!!
Hæ elskan,
Pabbi var líka búinn að bíða eftir bloggi frá þér. Það er nú oft gott að vera bara einn með sjálfum sér Saga mín og "horfa á enska boltann" segi nú bara sona. Hef samt öngvar áhyggjur af þér en lay off the Pizza. Mar getur ekki verið í ræktinni og étið flatbökur endalaust, det gider man ikke. Tékkaðu á mömmu með íbúð í köben um jólin, hún þekkir einhvern. Bið annars að heilsa, er að fara í pizzu og rauðvín :-)
Elska þig
Pabbi
Pabbi:
Ohh.. það kemur alltaf þannig út að við séum endalaust að éta pizzu.. en í rauninni fáum við nánast aldrei pizzu lengur..
Þú veist það samt alveg hvað ég þekki það vel að vera bara ein með sjálfri mér... það er bara soldið öðruvísi svona í útlandinu :)
En ég þarf ekki að tékka á þessu með íbúð :) Það er stelpa hérna úti sem heitir Snædís, mamma hennar og pabbi eiga íbúð í köben og við ætlum að fara nokkrir krakkar á föstudeginum 19. des mjög líklega og gista.. Hún sagði við mig í gær að við mættum vera í hennar íbúð eftir að þau eru farin heim til íslandss :) sem er semsagt ein nótt..!! Þannig að það er bara frábært! og ég er ekkert smá ánægð :).. á bara eftir að segja Hansa frá þessu.. haha þar sem ég heyri ekkert í honum af því við eigum ekki inneign! ;)
Annars..30 dagar í að við komum heim! hlakka svo til að sjá ykkur :)
Love you!!
til hamingju með daginn story (hansi líka).. ..
luv
bryn
Það verður að vera til komment frá frænkunni líka:) Ánægð með þig og ræktina....þú ættir að sjá pabba þinn....hann er ekkert smá duglegur í World Class.....og ég er meira að segja byrjuð:D
Þessi Steinsen family er hreyfingaróð;)
love you, Anna
Skrifa ummæli