Jæja..
Nú ætla ég að taka upp gamla bloggið. Aðalástæðan fyrir því er af því ég er að flytja :) Eftir þrjá daga mun ég labba út úr húsinu mínu í Kúrlandinu og mjög líklega aldrei eiga heima þar aftur?
Mér finnst það soldið mikið sorglegt, en í staðinn taka bara við ennþá skemmtilegri tímar.
Ég á eftir að sakna litla bróður míns svo mikið.. ég get bara varla lýst því :)
Hann er litli gleðigjafinn minn:) Alltaf tilbúinn að knúsa stóru systur sína þegar henni líður ekki vel og bara þegar hún þarf á knúsi að halda. Hann er bestur!
Verður skrítið að sjá hann ekki á hverjum degi :) en þá verður bara ennþá skemmtilegra að koma til hans um jólin ;*
Sjöfn systir.. ég á eftir að sakna hennar mikið líka :) Ekki allrar óreglunar reyndar en bara það að hafa hana ekki nálægt mér .. systkini eru mjög samrýndari en þau halda. Það verður skrítið að hafa ekki systkini mín nálægt mér á hverjum degi.. Bía líka :) Hún er svo spennt að fá loksins herbergið mitt.. að ég held hún sé ekki búin að fatta að ég er að fara ..
Svo auðvitað mamma mín og pabbi ... verður skrítið að hafa ekki þau til að segja mér hvað ég á að gera.. eða spjalla við mammsí :) En þau verða vonandi spennt að fá mig um jólin ;) Verður gaman að koma eftir nokkra mánuði og eyða jólunum með þeim ;* Jólin og áramótin verða alltaf að vera eins!!
Svo auðvitað *tengdafjölskyldan mín* á eftir að sakna þess að sjá þau ekki heldur! :) Og auðvitað allar vinkonur mínar og vinir.. sérstaklega Svava og Anna;* mun sakna þeirra mikið :) Fæ ekki svona mikið slúður alltaf í æð.. og get ekki tjillað heilu kvöldin og spjallað um ekki neitt;* Wanted stelpnanna auðvitað .. þið eruð frábærar :) Og síðast en ekki síst.. öll fjölskyldan mín;* systur pabba og börn..og Sjeibí frænks og Shaggy;*
En þrátt fyrir allt þetta sem ég á eftir að sakna.. þá sakna ég Hansa líka :) Og get ekki beðið eftir að koma til hans og knúsa hann..
Verður skrítið að byrja að búa.. en vonandi verður það bara algjört ævintýri og bara frábært!!
Ég er alveg að verða búin að henda ofan í kassa.. sirka 2 kassar eftir :/ Þá er ég búin að pakka öllu mínu dóti sem ég vil hafa með mér út.. svo er ég búin að pakka ofan í tvær töskur :) Váá! þetta verður svo skrítið.. . .
En í lokin mæli ég með að fólk dl. Stay with me með DJ Ironik
Hlustið á textann í þessu lagi.. geðveikur :)
En þetta verður semsé bloggið mitt í Árósunum.. þegar ég hef fengið nettengingu og komið mér fyrir :)
Þangað til næst..
Shags;*
4 ummæli:
thank god, þú verður með þetta blogg.. .. ekki að meika það að þurfa að fá mér facebook eða myspace til að skoða hvað þú ert að gera.. ..
maður á eftir að sakna þín svooooooooooooooooooooona mikið elsku saga.. .. fæ bara tár í augun við að skrifa þetta :O)
luv´ya big time
Bryn
fór næstum að gráta þegar ég fékk smsið í morgun:( og að það stóð að þú værir að fara að hefja nýtt líf!
fannst ég vera bara á annarri plánetu.. lova þig svoooo mikið og
á eftir að sakna þín svo rosa mikið;*
laf jú laf jú;*
Svava Marín
Elsku elsku Saga mín
Frábært að fá að fylgjast með ykkur á blogginu. Nú er að hefjast nýr kafli í þínu lífi og það er æði:) Bara gaman.
Við eigum samt eftir að sakna þín MIKIÐ því þú ert svo stór hluti af fjölskyldunni okkar. En....við fáum að sjá þig á jólunum og á sumrin og sonna.... þannig að við getum huggað okkur við það. Njóttu þess bara að vera til og njóttu lífsins. Þetta er bara æði:)
love you elsku frænka
Anna
gaman að lesa bloggið, sæt mynd af okks líka ;) En já ég vona þú hafir það sem allra best úti og ég mun sakna þín rosalega mikið :*
Lovejú beip
Sjöfn Systir
Skrifa ummæli